Ógislega töff;)..
sætasta barn í heimi(að mínu mati:)..)
10.07.2006 22:01:07 / evad

komin með nýtt bloggg....

http://evadp.bloggar.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 23:48:58 / evad

vond, verri ,verst= Eva Dögg..

Hvað segiði people er ekki allt í standi hjá ykkur;).. Við erum bara búin að eiga hina ágætustu helgi, fórum í óvissuferð á laugardaginn með vinnunni hans Brynjars, og var farið í siglingu um Norðfjörð og Mjóafjörð, get nú alveg játað að ég var nú soldið glöð að þetta yrði útkomann því ég hef nú ekki farið sjaldann í siglingu um Norðfjörð og nágrenni sem krakki... Það var grillað um borð og læti svaka flott sko, svo var farið í land í Mjóafjörð, alltaf jafn gaman að fara þangað, breytist ekkert:).. Við vorum komin heim um 23.30 og var litli engillinn minn soldið sibbinn þá.... Dagurinn í dag var tekinn með leti og svei mér þá ef ég fór eitthvað út úr húsi...hmm jú ég fór út á pall og steig aðeins á nýja grasið okkar, jam við erum komin með gras, þetta er allt að koma, manni líður þá ekki eins og maður búi í sandkassa!!... Er búin að vera í einhverju skrítnu skapi undanfarið, geðvond og leiðinleg, spurning hvort ég búi til svona skilti sem stendur á......VÁRUÐ ÞESSI ER LEIÐINLEG!!...sef á þessu í nótt, spurning hvort það sé hægt að fá svona skilti í bleiku???..... Hvað er málið með þennan bévítans fótbolta, það er ekki stundarfriður fyrir honum!!...maður getur ekki átt heilbrigðar samræður við matarborðið, því jú auðvitað er kveikt á fótbolta..væri ekki hissa að mér færi að dreyma hann líka!!..þá er sko of langt gengið!!...djöfull hlakkar mig til þegar þetta er búið!! Jæja ég held að nöttkeisið sé að fara koma sér að sofa...ætli ég vaknaði ekki öfugum meigin úr rúminu á morgun, það væri nú alveg til að toppa allt... BÆ....

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 14:31:52 / evad

í sól og sumaryl..........

heybbs.... já ég er sko ekki að standa mig í þessu blessaða bloggi!!..spurning hvort maður ætti kannski bara að fara hætta þessu????'8|');... kannski ekki mikið að frétta nema að ég er orðin árinu eldri!.spurning hvort það sé jákvætt eða neikvætt, maður nálgast 40 aldurinn óðfluga!;).. Það er búið að vera alveg crazy að gera hjá mér í vinnunni sem er bara gott mál, ég gæti unnið til miðnættis ef ég vildi, en ég er að hugsa um að reyna halda geðheilsunni!!..Svo er alveg yndislegur atburður að gerast núna 14 júni, en það er ég er þá búin með samninginn minn, heila 30 mánuði:)..JÍBBÝ!!..þarf bara núna að fara smá í skólann og þá bara er kellann búin:).. Það er búið að byggja þennan rosa flotta pall hjá mér, hann er alveg risa stór, pabbi, tengdapabbi og nátturlega minn elskulegi maður voru svo myndarlegir að byggja hann:)..Það er ekkert smá gott að hafa svona pall og geta setið í skjóli og sól og haft það gott:)...mmmm..allir að koma í pallapartý til min:).. SVo fer heldur beturt að styttast í að Sigurjón frændi og Þóra Matthildur fari að eignast sitt fyrsta barn en Þóra var sett 28 mai:)..ohh væri sko til að fara til eyja og heimsækja þau:)..get ekki beðið!!!:)... jæja það er nú ekkert meira að frétta héðan af melnum...Binni er að gera pönnukökur svo ég ætla að fara fá mér:)..nnnnnnaaaaaaammmmmmm:) later...

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:40:57 / evad

mín bara dugleg að blogga;)..

æja þá er bara kominn mai, styttist heldur betur í að maður verði eldri, líkar ekkert alltof vel hvað maður nálgast 30 aldurinn!..ég var einmitt spurð að því um daginn hvað ég væri gömul og min var sko fljót að svara "ég er 21 ára!" og Björk frænka bara "ha Eva Dögg ertu bara 21 ára" og ég bara já, svo eftir nokkrar deilur þar sem reiknivél var notuð!!...Þurfti ég vinsamlegast að leiðrétta mig og segjast vera 22 ára að verða 23!!Kræst tíminn hefur bara gjörsamlega stöðvast hjá mér!!svo ég segji bara "já ég veit ég er ljóska:))" Við erum að fara norður á morgun, ætlum að skella okkur í bústaðinn með bræðrum minum, mútta og pápi eru að fara í fyllerísferð á mývatn(ok það er kannski til betra orð, skemmtiferð:))..hehe..svo við erum að passa strákana og ætlum að vera inni í sælureit, elska að vera þarna, maður getur svo sannalega ekki kvartað þegar maður er í bústaðnum:).. jæja ég nenni ekki að bulla meir, Bjartur var að kalla að hann sé búinn á klóinu svo skildan kallar... over and out...

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 12:05:06 / evad

Blogg og aftur blogg

heil og sæl.... jæja svei mér þá ef að sumarið er ekki bara komið hingað í sveitina;).það er allavega 27 stiga hiti í sól. alveg geggjað veður!!..ég og sonja ætlum að fara út að labba eftir vinnu með börnin;)... Páskarnir voru alveg frábærir, hefði nú samt viljað vera duglegri að hitta fleiri, en svona er þetta.. Við erum búin að fjárfesta í nýjum bíl':haha:');..og er það sko draumabílinn minn frá a-ö, skoda octavia station turbo, með leðri, topplúgu, 150hestöfl, fjórhjóladrifinn;)...mmmm það ert alveg klikkað að keyra hann...elska bílinn minn..hihi:).. Bjartur Páll er svo alveg að verða 3 ára, hann á afmæli núna 15 mai, vá hvað tíminn líður hratt, mér finnst eins og hann hafi orðið eins árs bara í gær!!!':cry:');...en það á nátturlega að halda flotta afmælisveislu, og ætlar mamma og co og tengdó að koma til okkar, það verður alveg toppurinn að fá þau öll til okkar:).. jæja ég nenni ekki að blogga meira, er með svo langar neglur að ég ýti alltaf á 2 stafi í staðinn fyrir einn':^)');..frekar pirró sko.... later aligeiter....

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 22:27:47 / evad

Heima er best.......

díses var búin að að skrifa alveg heilann hellinng og svo datt það út':^)');..nenni nú ekki að skrifa allt aftur en ég skal skrifa það helsta!!!.. Það er nú soldið síðan maður hefur sest niður og bloggað, það er nú ástæða fyrir því';)');... Við erum flutt í nýja húsið og vá hvað það er geggjað flott:)..erum alveg í skýjunum með það!!..Fluttum inn 2 vikum síðan, mamma, pabbi og strákarnir komu og hjálpuðu okkur, það var alveg æðislegt að fá þau og hefðum við ekki getað staðið í þessu án þeirra:)..Þau komu nátturlega með fullann bíl af dóti handa okkur, mamma var alveg missa sig að versla nýtt stuff handa okkur fyrir norðan...takk elsku mamma mín elska þig':D');... Það er eiginlega bara eitt sem stendur upp úr í nýja húsinu og það er baðkarið mitt, ég er eiginlega bara búin að vera í baði síðan við fluttum, ekki vegna þess samt að það sé svona vond lykt af mér heldur er þetta ekkert venjulegt baðkar heldur NUDDBAÐKAR MEÐ ÚTVARPI!!..ohh það er geggjað að liggja í því með nuddið á og hlusta á góða tónlist..algjör paradís:).. Við erum ekki búin að ákveða hvað við gerum um páskana, þar að segja hvort við förum norður eða verður bara heima, mig langar alveg rosalega að fara norður en það er líka alltaf svo gott að vera bara heima hjá sér:)..svo við erum alveg á báðum áttum.... Jæja ég held að það sé komið nóg af vatni í baðið mitt, ætla að fara koma mér í bað og njóta þess að vera þar í afslöppun, kannski maður bjóði Binnaling það er aldrei að vita;)..gggrrrrrrrr':haha:'); p.s ég er búin að setja inn fullt af myndum af húsinu okkar á síðuna hans Bjarts:)... http://barnaland.is/barn/12630

» 10 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 18:00:32 / evad

Lífið er yndislegt:)..

Jæja það er kannski kominn tími á eitt blogg eða svo;)..talvan okkar er enn biluð, erum búin að senda hana suður en það er víst svo mikið að gera á apple að þeir eru ekki einu sinni búnir að kíkja á hana, kannski maður fái hana bara ekkert fyrr en á næsta ári:klikk:...En hún Sonja babe er búin að vera svo yndisleg að lána mér fartölvuna sína, takk dúllan min:D

Lífið hefur nú bara gengið sinn vanagang, fórum reyndar í bústað seinustu helgi með Sonju, Ragga og klöru litlu, og var það ekkert smá gaman, gamanað vera í góðum vinahóp:)..eigum sko pottþétt eftir að endurtaka þetta aftur:)..

Við fáum íbúðina okkar 90%  næstu helgi, ohh vá hvað mig er farið að hlakka til, þeir eru eiginlega búnir að öllu, bara svona smotterí eftir:).Mamma, pabbi og strákarnir ætla að koma og hjálpa okkur, hvar værum við ef við ættum þau ekki að:)...Þau er svo yndisleg að maður þakkar sko fyrir að eiga svona æðislega fjölskyldu:)..

Jæja ég hef nú ekki mikið meira að segja, nema að ég er búin að setja inn alveg helling af myndum inn á síðuna hans Bjarts meðal annars nokkrar af nyja húsinu:)..endilega kíkiði, og kvittið í gestó;)...http://www.barnaland.is/barn/12630/

later.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 18:22:41 / evad

Afhverju þurfa börnin mans að meiða sig??...

heybbs.....

jæja haldiði ekki bara að fina makka tölvan min hafi bilað:S..jam hún ákvað bara að bila á mig!!..og þarf að senda hana suður í viðgerð, rosa gaman, eða ekki:cry:...Andri frændi var svo elskulegur að lána mér fartölvuna sína svo ég kæmist á netið, má segja að ég hafið verið komin með væg fráhvarfseinkenni8|..

Við skelltum okkur litla fjölskylda í bústað upp á úflstöðum seinustu helgi og var það ekki smá næs, vera bara í hreinni afslöppun inn í skógi..Við erum svo líklegast að fara aftur núna þessa helgi en Ragga og Sonju langar svo að fara með okkur, enda skil ég það mæta vel við erum svo andskoti skemmileg:haha:..er haggi Sonja;)???...hehe..

Hvað haldiði að hafi gerst á seinasta fimmtudag...litla ljósið mitt hann Bjartur Páll fékk gat á hausinn:cry:..hann var að príla hérna heima og datt aftur fyrir sig og fékk gat á hnakann og það þurfti að sauma 5 spor í litla engilinn minn...og ekki nóg með það þá leið næstum yfir mömmu hans á meðan það var verið að sauma hann:^):^)...Allt í einu leið mér svo skringilega, heyrði ekki neitt og sá ekki neitt og var alveg ógeðslega óglatt..en sem betur fer var Björk systir mömmu með okkur svo hún knúsaði Bjart og huggaði hann á meðan ég var að jafna mig8|...Mér fannst bara svo erfitt að sjá barnið mitt svona sárþjáð og geta ekki bara kysst á báttið og lagað allt það var bara of erfitt!!!..Enda verður það þannig í framtíðinni þegar börnin okkar Brynjars slasa sig þá ferð hann með þau!!:$...ég hef barasta allt of lítið hjarta í svona...

Jæja ég held að ég hafi nú ekki meira að segja í þetta skipti...

over and out....


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 11:48:05 / evad

Er Silvía Nótt fyrirmynd????.......

hey............ Vá hvað það var gaman að horfa á evróvision keppnina á laugardaginn:)..Brynjar hélt nátturlega með viðhaldinu sinu henni Silvíu Nótt, en ég hélt með Friðrik ómari(of course) og Regínu, Fannst þau standa sig alveg ótrúlega vel og áttu bæði að vinnna bara svei mér þá:)...En ég er ekkert ósátt við að silvia nótt fari, en ég meina comm on hún er ekki að standa sig finnst mér, ég meina helmingur atkvæða sem hún fékk var frá litlum stelpum sem eiga gsm síma, sem eru alveg að elska hana, og finnst ykkur hún vera að sýna góða fyrirmynd??..eins og hún var í kastljósinu um daginn, það var bara eins og hún væri útúr kókuð mella, ef ég ætti litla stelpu sem sæi hana sem fyrirmynd þá væri voðinn vís!!!.....Finnst bara að núna ætti leikonan hún Ágústa Eva að koma fram i sviðsljósið og leggja Silvíu Nótt á hilluna í smá tíma, annars held ég að maður verði kominn með grænar bólur þegar loksins kemur að eurovision.... Helgin var bara ágæt, við hjónakornin lágum í flensu meira og minna alla seinustu viku'8|');...frekar ömó, en gott að hafa félagsskap þegar maður er lasinn; )..hehe...Svo fer nú heldur betur að styttast í húsið okkar, þeir eru bara farnir að sparsla þannig að allir veggir eru komnir upp og sonna, svo nú er bara að setja innréttingarnar:).gaman gaman... Mamma var svo rosalega góð við okkur að hún gaf okkur svona eyju úr ikea sem á að vera inni í eldhúsinu:)..við vorum nátturlega alveg í skýjunum yfir þessar gjöf:)...takk elsku mamma min, elska þig':haha:');....... Jæja ég ætla að fara að fá mér að borða, er í mat........later aligeiter....

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 21:11:42 / evad

Nóg til af þessu klukki mar;)...hehe

4 störf sem ég hef starfað við um ævina: Þerna á hótel kea þjónn á hótel Kea hágreiðslunemi á Meddullu:) Herta:).. 4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur: pretty women wedding planner clulesss æ jólamynd með nicholas Cage, man ekki hvað hún heitir;).. 4 staðir sem ég hef búið á: Neskaupstaður Akureyri Reykjavík Reyðarfjörður 4 sjónvarpsþættir sem ég fíla: svo erfitt að gera upp á milli... Nip tuck 24 greys antomi glæstar vonir Nágrannar 4 staðir sem ég hef farið í frí: Mallorca Portúgal Danmörk Lundskógur;)..hehe 4 heimasíður sem ég heimsæki daglega: síðan hans Bjarts barnaland fer bloggrúnt síða hjá litilli stelpu sem er að berjast við erfið veikindi:(.. 4 uppáhalds matartegundir: tortilla kjúlli kjúklingabringur fylltar með piparosti doritos réttur 4 staðir sem ég vildi heldur vera á: líður nú rosa vel hérna heima sko en kannski bara Akureyri, hjá mömmu Mallorca með famelíunni thats it;) 4 hlutir sem ég hlakka til: flytja í raðhúsið mitt klára námið eignast annað barn;)..ekki strax samt sko:)... gifta mig... flygjast með Bjarti stækka:)... 4 aðrir bloggarar sem ég ætla að klukka: Birna babe Elísa skvísa Toffy sæta Elsa Sæný danmerkugellu

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 09:28:49 / evad

áfram að Silvía Nótt........

heybbz.... Það styttist alltaf og styttist í afhendingatíma á raðhúsinu okkar, ég er ekki frá því að ég sé orðin pínu spennt:)..annrs líður okkur nátturlega svaka vel hérna í blokkinni okkar:)... Það er alltaf verið að vinna hérna úti, núna eru þeir að reisa blokk númer 3, þetta verða semsagt 4 alveg eins blokkir. ég er samt að verða nett geggjuð á hávaðanum, þar sem þeir eru að reisa eina blokkina upp við herbergisgluggannn minn, svo það er ekkert rosa gaman að reryna að sofa!!!.....en svona er að búa í bæ sem er að stækka og stækka:)...ætli Reyðarfjörður verði ekki orðinn stærri en Akureyri á endanum;)...hehe.... Þessi vika er ekkert smá búin að fljúga áfram, það er bara strax komin helgi aftur, búið að vera fint að gera í vinnunni, alltaf jafn gaman að vinna:)...Svo er það bara sumarbústaður næstu helgi:)...eða kannski vetrabústaður. Við ætlum að skella okkur með Ragga,Sonju og KLöru litlu, ætlum að reyna að fara helgina 17-19feb, ohh hvað það verður gaman að fara saman, borða góðann mat, spila og liggja í leit, við förum í bústað sem er á Úlfstöðum rétt hjá atlavík... Jæja ég hef nú ekki meira að segja er að hugsa um að dríbba mig í vinnuna,......

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 13:15:15 / evad

Áfram ísland......

það er kannski kominn timi til að blogga er það ekki;)??.... Við skelltum okkur norður seinustu helgi. Þetta var nú samt soldið glötuð ferð því, Bjartur lenti upp á gjörgæslu daginn sem við komum, sprakk hljóðhimnan hjá honum og var hann með bullandi eyrnabólgu, 40 stiga hita og einhvern vírus:(..svo hann var settur á pensilin. Brynjar var á hækjum alla ferðina':$');..hann vaknaði á fimmtudeginum alveg að farast í löppinni, svo versnaði hún við að keyra norður svo hannn þurfti að fara til læknis og viti menn hann var tognaður svo hann var settur á hækjur gat ekki stigið í fótin. Svo var það ég, ég fór nátturlega í svona hjartamyndum þar sem farið var með myndavél niður hálsin og hjartað skoðað, ég þurfti að fá 4 róandi sprautur og var þetta helviti!!...ég var eiginlega bara alla helgina að jafna mig:(..svo við erum sko sannköllum óhappa fjölskylda.... Við náðum nú samt að bjarga helginni undir lokin, við fórum inni í bústað með mömmu, pabba og strákunum, og var bara slakað á og haft það notalegt í faðmi fjölskyldunnar:).. Nú fer heldur betur að styttast í að við flytjum í raðhúsið okkar, bara cirka 2 mánuðir;)...getum ekki beðið . það verður alveg æðislegt að komast svona niður á jörðina með litla gúbbann:)...En samt er alveg frábært að vera hérna í blokkinni.... Jæja ég er að hugsa um að fara þrifa hérna heima, leikskólinn hjá Bjarti var lokaður í dag að sökum starfsdags svo við erum bara 2 heima að dúlla okkur:)...

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 20:35:52 / evad

ok verða að prufa þetta bull;)..það er ekki hægt að gera greinaskil í makkanum minum, hann er of fullkominn fyrir svona blogg rugl;)..hihi

1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 14 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 15:46:09 / evad

.......................

þunn, þynnri, þynnst'8|');

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 23:30:09 / evad

Þorrablót here i come;)..

Heybbs,,, Min bara dugleg að blogga;)..Það er búið að vera frekar rólegt að gera í vinnunni, mér finnst það bara fint,gott að fá smá brake eftir jólatörnina;)..hihi... En svo er það hið árlega þorrblót sem er haldið og ætlar kellann sko að skella sér þar sem ég er orðinn lögskráður Reyðfirðingur;)..Það meiga nefnilega bara fara fólk sem er með skráð lögheimil hérna..Binni kallinn ætlar sennilega ekki að fara, ég vil samt að hann farið með mér en ekki get ég neitt hann...er það nokkuð':$'); Ég er að verða fullbókuð á þorrablótsdaginn svo gellur þið verðið bara að slást um þessa örfáa tíma sem eru eftir;)...neinei ég skal bara redda ykkur elskurnar minar':haha:'); Jæja ég er að spá í að fara sofa í hausinn á mér, en kannski maður fari bara að kúra með BInna...ggggrrrrrr':lol:');

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5